29. desember 2008 klukkan 18:08

Elsku barnið mitt er náttúrulega snillingur.
Hún er ekki alveg að ná íslenskunni nógu vel. Segir bara mamma og dabb sem við erum búin að þýða sem takk. Og hvað gerir lítil stelpa þá í málunum. Nú býr auðvitað til sitt eigið tungumál! Litla skottan talar og talar og talar og við skiljum EKKERT hvað hún segir. Hún bendir, verður alvarleg á svipinn og segir svo kannski dibi dabi dibudá með voða áherslum. Alveg eins og hún hafi verið að segja okkur eitthvað ofsalega merkilegt. Svo ef maður talar við hana á móti þá heldur hún áfram, endalaust af óskiljanlegu babbli en örugglega allt með ofsalega mikilli meiningu. Eða allavegana tilþrifum.
Svo ef maður skilur ekki babblið þá hefur hún aðrar leiðir. Ef hana langar að leika inni í herbergi þá grípur hún í puttann á manni og dregur mann með sér þangað. Ef hana langar að setjast í stól þá klappar hún fast á setuna og biður svo um að láta taka sig upp. Mjög skýr skilaboð frá ungri dömu.
Við erum búin að vera í algeru hláturskasti undanfarið yfir henni. Hún er algerlega ákveðnasta pían á heimilinu og tekur því ekki vel ef maður bannar henni eitthvað. Hendir sér í gólfið með mjög dramatískum tilburðum sem foreldrunum finnast oft sjúklega fyndnir. Er svo jafn fljót að gleyma því hvað það var sem orsakaði dramakastið ef maður sýnir henni eitthvað annað skemmtilegt dót.
Hún dundar sér helst við það þessa dagana að raða saman hlutum. Finnst það ofsa spennandi og allt sem er gaman er gert aftur og aftur og aftur. Endurtekning er s.s. mikið málið núna. Henni finnst allt með tökkum MJÖG spennandi og þá er gott að vera búin að fá fullt af svoleiðis dóti frá Böðvari.
Hún er nýbúin að læra að klifra upp í sófann. Var svo ánægð með sig þegar henni tókst það fyrst. Er búin að hamast við þetta undanfarnar vikur að reyna hvað hún getur og loksins tókst það. Það er því mikið leikið sér í sófanum þessa dagana. Hún hefur líka undanfarið beðið um að fá að leika sér í rúminu sínu. Hleypur endanna á milli og hendir sér niður. Ofsa mikið stuð.
Magnea fékk líka tvær dúkkur í jólagjöf og dúkkukerru. Er voða ánægð með þær báðar en kann ekkert ofsa mikið á þær. Tekur þær upp á hárinu og heldur á þeim þannig og vill svo sjálf bara sitja í dúkkukerrunni. Held að við látum allavegana kerruna hverfa þangað til í sumar, svo hún skemmist ekki og kannski dúkkurnar bara líka.
Ætla að reyna að setja inn fleiri myndbönd af píunni í kvöld.
Laufey Kristín Skúladóttir
Magnea |
26. desember 2008 klukkan 05:55
Það má með sanni segja að jólin hjá okkur fjölskyldunni hafi verið með nýju sniði þetta árið. Ekki nóg með það að við séum fjarri fjölskyldu og vinum og í ókunnugu landi heldur fengum við líka óvænta gesti á aðfangadagskvöld og fórum í jólaboð til yndislegrar fjölskyldu í dag. Þannig er mál með vexti að rafmagnslínur eru ekki í jörð hérna eins og heima. Þegar svo snjóar eins mikið og hefur gert undanfarna daga þá fara trén að gefa undan og detta á blessaðar línurnar. Þetta gerðist á aðfangadag og stór hluti borgarinnar varð rafmagnslaus. Við fengum hringingu frá Máneyju Víði og Steinunni Völu milli fjögur og fimm á aðfangadag og þá sátu þau greyin í myrkrinu heima hjá sér, gátu ekki einu sinni farið í bað og hvað þá eldað jólaöndina. En það var anda-þema hjá okkur öllum 3 Seattle fjölskyldunum í ár. Við sögðum þeim að pakka bara saman jólunum sínum og bruna til okkar og borða hjá okkur. Rétt eftir sex komu þau svo og við fórum í það að klára að elda. Við áttum saman yndislegt kvöld, spjölluðum, borðuðum á okkur gat og höfðum það huggulegt. Svo var rafmagnið sem betur fer komið á aftur hjá þeim þegar þau komu heim til sín um kl. 11. Eftir að þau fóru opnuðum við hjónin okkar pakka. Magnea var orðin svo þreytt þegar við vorum ennþá að borða rúmlega 8 að hún fór bara að sofa þá og opnaði alla sína pakka ekki fyrr en í morgun. Litla krúttið var alveg í essinu sínu og opnaði hvern pakkann á fætur öðrum. Takk æðislega fyrir okkur allir! Þúsund kossar fyrir allt fíneríið!!
Í dag var svo búið að bjóða okkur í jólaboð til systur stelpunnar sem við hittum í flugvélinni á leiðinni hingað. Já frekar spes. Við hittum s.s. íslenska stelpu á leiðinni hingað í ágúst. Í september fórum við svo til systur hennar í afmæli og hittum þau svo aftur á jólaballi íslendingafélagsins. Þá buðu þau okkur að koma til sín á jóladag. Þannig að í dag klæddum við okkur í sparifötin og brunuðum í snjónum í næsta bæ sem heitir Mill Creek. Þar var heljarinnar stórt fjölskyldu jólaboð í gangi, ótal margir saman komnir. Mikið spjallað og borðað. Það var æðislegt að hitta allt þetta fólk, svo ofsalega vinaleg og tóku svo ótrúlega vel á móti okkur. Við áttum þess vegna alveg yndislegan dag í dag í faðmi mjög skemmtilegrar fjölskyldu þótt það væri ekki okkar fjölskylda.
Annað kvöld eru svo Arna og Káki búin að bjóða okkur til sín í hangikjöt. Hlakka ótrúleg til að fara og hitta þau og Máney, Víði og Steinunni. Ætli morguninn fari ekki bara í rólegheit og leti hérna heima. Við erum alveg búin að borða á okkur gat, sem svo sem fylgir þessari hátíð. Fengum fullt af íslensku nammi og erum búin að háma það í okkur. Hlusta á íslenska tónlist og hafa það ofsa kósí.
Gleðilega jólarest!
Laufey Kristín Skúladóttir
Almennt |
22. desember 2008 klukkan 17:24
Halló halló
Við hérna í snjóborginni miklu erum hress svona nokkrum dögum fyrir jól. Undanfarna daga erum við búin að vera að kynnast alveg nýrri hlið á borgini okkar. Það hefur allt verið á kafi í snjó í svona rúma viku, borgin hálf lömuð og miklu rólegri og hljóðlátari en hún á að sér að vera. Fólk hreyfir lítið bílana sína, gengur og tekur strætó eða er hreinlega bara heima. Sem er örugglega frekar óeðlilegt á þessum árstíma þegar allar búðir eru fullar af fólki að undirbúa sig fyrir hátíðarnar.

Á fimmtudaginn fyrir rúmri viku flugum við til San Francisco, daginn áður en byrjaði að snjóa, og hittum þar frænda hans Indriða hann Ragga, Ingu Þórey konuna hans og hana Unni Efemíu sem er tveimur mánuðum yngri en Magnea. Það var ofsa gaman hjá okkur öllum saman. Við borðuðum góðan mat, röltum um borgina, leigðum okkur bíl einn dag og fórum í vínsmökkunarferð til Sonomadalsins sem liggur samsíða Napadalnum og svo fórum við Inga og sáum Hnetubrjótinn hjá San Francisco ballettinum. Það eina sem var ekki eins og best verður á kosið var veðrið en það rigndi mest allan tíman sem við vorum þarna. Við þurfum þess vegna eiginlega að fara aftur í vor og fá ekta Kalíforníustemningu. Takk kærlega fyrir okkur elsku Inga, Raggi og Unnamía!
Annars hafa síðustu dagar einkennst af ritgerðarsmíð hjá mér og hugglegheitum og sleðaferðum hjá Indriða og Magneu. Ritgerðin potast áfram og eru núna komnar 27 bls af 50. Þetta á eftir að klárast fyrir skiladag sem er 15. Jan.
Þetta hefur samt þýtt að jólaundirbúningur er hálf eftirá hérna á heimilinu. Jólahreingerningin er ennþá ógerð, jólamatseðillinn er ennþá ekki orðin fullbúin og ekki búið að fara og versla inn og það á ennþá eftir að kaupa síðustu gjafirnar. Það verður farið í leiðangur til að bjarga þessu seinna í dag og þrifin eru áætluð í kvöld. Þetta reddast allt saman á endanum.

Magnea er búin að vera í hálfgerðu dóta-heaven síðan Gummi, Þorbjörg og Böðvar fóru fyrir rúmri viku. Magnea fékk svo mikið af dótinu hans Böðvars og er búin að vera að leika með nýtt dót á hverjum degi. Í sérstöku uppáhaldi síðustu daga er búið að vera hljómborð sem hún spilar á og syngur í míkrafóninn af mikilli innlifun. Annars er þetta litla skott búið að vera eins og engill að vanda. Ofsa stillt og þæg. Við foreldrarnir erum búin að vera hálf meyr síðustu daga yfir myndunum sem hafa verið teknar af henni á þessu ári. Hún er búin að stækka og þroskast svo mikið og sennilega við foreldrarnir líka. Alger gullmoli þessi litla elska og algerlega það besta sem gat komið fyrir okkur hjónin.
Við settum inn nýjar myndir á myndasíðuna og svo eru komin 2 ný myndbönd undir myndbandaflipan hérna að ofan.
Við sendum okkar bestu jólakveðjur til allra vina heima með ósk um yndislega daga framundan.
13. desember 2008 klukkan 05:08
Þá er víst komin tími á að standa við stóru orðin og skrifa eitthvað af viti hérna.
Það sem hefur helst borið til tíðinda hjá okkur fjölskyldunni hérna á 49. stræti er bíóferð, matarboð, flutningar, sprautur hjá M, saumaklúbbur, annarlok og svo jólaballið auðvitað. Jólaballið var voða skemmtilegt, það komu jólsveinar og Magnea fékk að spjalla aðeins við þennan Ameríska kall. Það voru nokkrar al-íslenskar fjölskyldur þarna og það var voða gaman að hitta þær. Margir samt sem eru greinilega annarar kynslóðar íslendingar sem tala ekki lengur íslensku. Það var gengið í kringum jólatréð, sungin jólalög og drukkið kaffi. Ekta íslenskar pönnukökur og kleinur á borðstólnum, púðursykurmarengs og fleira góðgæti. Ofsa huggulegt.
Í byrjun þessarar viku voru svo tvö stelpukvöld í röð hjá mér. Á mánudagskvöldið fórum við Þorbjörg og Máney í bíó og sáum 4 Jól með þeim Reese Witherspoon og Vince Vaughn. Það var ofsa gaman, poppið gott og myndin skemmtileg. Það er aldrei að vita nema maður skelli sér bara aftur fljótlega. Svo á þriðjudagskvöldið þá fórum við skvísurnar yfir í Kirkland til stelpu sen heitir Erna. Hún bauð til sín 8 íslenskum stelpum í saumaklúbb, gaf okkur að borða og við spjölluðum langt fram á kvöld. Ofsa gaman að hitta þessar 3 sem ég hafði ekki hitt áður og hinar líka að sjálfsögðu.
Það standa svo yfir flutningar hjá Gumma og Tobbu í þessum töluðu orðum. Það er verið að tæma íbúðina og þrífa og koma öllu dótinu fyrir í töskum eða kössum. Heiðrún fór í morgun og svo fara þau í fyrramálið. Þeirra á eftir að vera sárt saknað. Þau eru öll svo skemmtileg, alveg frábært fólk! Það gleðilega er að hún Arna er komin aftur. Þannig að það bætist aðeins aftur í hópinn hjá okkur hérna.
Magnea fór í sprautur um daginn. Var bólusett gegn flensunni og hlaupabólu, sem mér fannst frekar fyndið. Maður fékk nú bara hlaupabólu í gamla daga, það var ekki verið að splæsa neitt í mótefni gegn henni. En hérna í Ameríkunni er sko ekki verið að taka neina sénsa, bara bólusett fyrir öllu mögulegu. Skvísan var samt ekkert að fíla þessar sprautur neitt ofsa vel. Þetta var í þriðja skiptið sem hún hefur fengið sprautur þarna á heilsugæslunni og núna vissi hún sko nákvæmlega hvað stóð til. Um leið og blessuð hjúkkan settu upp bláu gúmmíhanskana þá trylltist barnið, öskraði og grét og mótmælti hástöfum. Greyið. Veit ekki alveg hvernig þetta verður eiginlega næst.
Indriði kláraði prófin, eða prófið rétta sagt á fimmtudaginn. Ofsa gott að hann er búin að klára þetta og gott frí sem er framundan hjá okkur. Við erum að fara á morgun til San Francisco í heimsókn til Ragga, Ingu og Unnar Efemíu sem er næstum jafn gömul og Magnea. Við skvísurnar erum búnar að kaupa miða á San Fran ballettinn, ætlum að sjá Hnetubrjótinn sem þeir eru að sýna núna. Hlakka alveg ofsalega mikið til. Svo ætlum við að leigja okkur bíl í einn dag og keyra í Sonoma sem er vínhérað sem er rétt fyrir utan borgina. Þetta verður örugglega mega skemmtilegt hjá okkur.
Jólaundirbúningurinn er líka búin að vera í fullum gangi hjá okkur. Það er fyrir löngu búið að setja upp seríur og kúlur í gluggana. Í gær gerði ég jólaísinn og í dag bakaði ég fyrstu sortina. Elsku pabbakökurnar sem ég hef borða um hver einustu jól eins lengi og ég man eftir mér. Í gær kláruðum við svo að skrifa jólakortin og þau fóru af stað til Íslands í dag. Með mynd af skvísunni og allt! Ég hef samt örugglega gleymt einhverjum og þá er bannað að vera leiður. Ég keypti svo grenikrans um daginn í búðinni og íbúðin er búin að lykta ofsa jólalega síðan þá. Ég algerlega elska grenilykt. Þegar við komum aftur frá San Fran þá er stefnan að ná sér í jólatré og skreyta. Það er víst alveg málið að gera það snemma hérna. Jólapakkarnir eru lang flestir komnir í hús og búið að senda þá af stað. Það eru nokkrir eftir samt sem verða vonandi keyptir í Kaliforníu. Fyrsti pakkinn frá Íslandi með jólapökkum er líka búin að skila sér og bíða þeir inni í geymslu.
Jæja ætli þetta sé ekki bara gott í bili...
Kveðjur frá Sívætlu
08. desember 2008 klukkan 23:03
Hérna koma nokkrar myndir frá jólaballinu sem við fórum á um daginn. Hann Hjalti tók þessar fínu myndir og stálum við þeim frá honum.

Indriði og Magnea að skoða jólatréð

Dansað í kringum jólatréð með mömmu

Indriði nýklippti fylgist spenntur með

Magnea og mamma að dansa og syngja

Magnea, mamma og Þorbjörg

Þorbjörg og Böðvar sem datt á Thanksgiving og fékk svona rosa kúlu á kollinn
Kem með eitthvað mega smellið blogg í kvöld eða á morgun. Núna þarf maður víst að setjast við skriftir, þessi blessaða ritgerð skrifar sig víst ekki sjálf. (Er komin með 18 bls af 60 fyrir þá sem vilja vita) Barnapían er komin og farin út að labba með Magneu sætu og þá er víst ekkert annað að gera en að byrja.
Jólakveðja til allra
Laufey Kristín Skúladóttir
Magnea |
01. desember 2008 klukkan 05:57

Settum inn myndir áðan.
Allir að skoða það.
Annars erum við hress.
Og biðjum að heilsa.
Laufey Kristín Skúladóttir