Um mig

  • Nafn: Laufey Kristín Skúladóttir
  • Netfang: laufeykristin@gmail.com
  • Stađur: 98103 Seattle, WA
  • Heimilisfang: 1302 N 49th St.
  • Um mig: GSM: +1-206-265-1339

Auglýsing

Teljarinn

Lilypie 2nd Birthday Ticker

Og viđ teljum niđur...

Innskráningar kubbur

Síđurnar mínar

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Fréttabréf ungfrú M

30. apríl 2008 klukkan 07:52
skvísan

Jæja þá er skvísan litla að fara í fyrsta skipti til útlanda á morgun. Ferðinni er heitið til Edinborgar (eins og allir ættu sennilega að hafa áttað sig á). Pæjan er komin með vegabréf og allt og er strax búin að segja mömmu sinni að hún ætli að verða mikill ferðalangur. 

Annars er það helst að frétta að litla bollan neitar alveg að snúa sér. Hún var farin að snúa sér af maganum yfir á bakið en er steinhætt því og orgar bara ef hún nennir ekki að liggja lengur í sömu stellingunni. Þá á maður að þjónusta hana. Og það er sama hvað maður reynir, hún gefur sig ekki. Fínhreyfingarnar hjá henni eru orðnar rosa góðar, hún heldur á snuddunni sinni og snýr henni á alla kanta, stingur henni upp í sig og tekur út aftur. Hún er líka farin að draga undir sig fæturnar þegar hún liggur á maganum og reyna að mjaka sér þannig áfram.

Nýjasta stuðuð hjá henni er að purra og gerir hún það í tíma og ótíma. T.d. um daginn þegar familyan var hérna í mat þá purraði hún af lífs og sálarkröftum allan tímann meðan verið var að borða. Svo hátt að stundum var varla hægt að tala saman. Hún stefnir líka í að verða matvönd eins og mamma hennar var. Fúlsar við flestu grænmeti en finnst ávextirnir þeim mun betri. Það þarf því að beita ýmsum aðferðum til að koma blessuðu grænmetinu ofaní hana. 

Við setjum inn myndir eftir helgina þegar við komum frá Edinborg.
Laufey Kristín Skúladóttir
Magnea | 5 athugasemdir

3 dagar í Edinborgarferđina

28. apríl 2008 klukkan 10:01
  • sætastar
  • Spenningurinn magnast...
  • Guðný ertu tilbúin?
  • Við erum sko á leiðinni með allt okkar hafurtask.
  • Í gær var fullt af góðu fólki hjá okkur í mat. Einar tengdapabbi, Sissa amma Indriða og Erla og Gísli, afi og amma á Króknum. Þannig að Magnea litla fékk að hitta tvær langömmur, langafa og afa. Þvílíkt skemmtilegt. Enda brosti hún allan hringinn allt kvöldið.
  • Annars er litla skottan búin að vera hálf hás og pínu lasin undanfarna daga. Fékk smá hita um daginn en er hitalaus núna. Við mæðgur verðum þess vegna bara inni allavegana í dag og kannski á morgun líka. Vonandi verður hún orðin alveg hress fyrir fimmtudaginn.
  • Við hjónin erum orðin voða sjúk í hafragraut. Eldum okkur á hverjum morgni eiginlega. 
  • Það er ekkert ennþá byrjað að mála stigaganginn. Vonandi verður byrjað á því í þessari viku. 
  • Mér langar rooooosalega mikið á Madonnutónleika. Vonandi fer hún í tónleikaferð til að fylgja eftir nýju plötunni.
  • Við hjónin erum líka orðnir forfallnir American Idol aðdáendur. Verst að ég þarf eiginlega að hætta að lesa slúðrið á netinu til að skemma ekki fyrir mér þáttinn. Er t.d. núna búin að fatta hver dettur næst út. 
  • Svo er Greys að byrja aftur. Júhú!
Laufey Kristín Skúladóttir
Almennt | 5 athugasemdir

Guess who´s middle name is Muriel?

26. apríl 2008 klukkan 22:56
Fór í bíó um daginn með Feminista-leshringnum mínum. Fórum og sáum Lake of fire í Regnboganum. Myndin fjallar um fóstureyðingar í Bandaríkjunum og er með þeim áhrifameiri sem ég hef séð lengi. Í bland við hræðilegar myndir af eyddum fóstrum var þetta hræðilegur vitnisburður um öfgahópa innan kirkjunnar. Áður en ég sá myndina þá hafði ég alltaf haldið að sögur um svona kristna trúarofstækismenn væru hálfgerðar flökkusögur. Eftir að hafa séð þetta veit maður að svo er ekki, trúarofstækið er ekki bara í múslimalöndunum. Þeir eru í alvörunni til í að drepa til þess að vernda saklaus líf ófæddra barna og hafa gert það oftar en einu sinn og oftar en tvisvar. Hún var reyndar frekar löng fyrir minn smekk, næstum tveir og hálfur tími. Nánar er hægt að lesa um hana hér: http://www.imdb.com/title/tt0841119/

Í dag erum við búin að vera í extended heimsókn á Keili hjá Reyni, Kötlu, Árna Tuma og tvíburunum. Fórum frekar snemma í morgun og strákarnir fóru í skvass og komum aftur í kvöld. Þau algerlega búin að sitja uppi með okkur fjölskylduna. Myndavélin varð batteríslaus þannig að við tókum ekkert mikið af myndum. Takk kærlega fyrir okkur Brosandi

Mamma og pabbi komu svo í gær í heimsókn til okkar og stoppuðu í kvöldmat og allt. Þar sem það er nú komið sumar þá grilluðum við. Þetta var sko geggjað gott og átti Indriði allan heiðurinn af því. Af hverju grillar maður ekki oftar? Og af hverju grillar maður aldrei á veturna? 
Laufey Kristín Skúladóttir
Almennt | 2 athugasemdir

Myndir af Magneu Ósk

24. apríl 2008 klukkan 20:39
moi
Magnea í fallega dressinu frá Sissu langömmu.
moi
Magnea í Titanic fíling með mömmu.
Laufey Kristín Skúladóttir
Magnea | Engin athugasemd

Sitt lítiđ af hverju

23. apríl 2008 klukkan 15:42
Indriði greyið er lasinn. Búin að hanga heima í tvo daga og er alveg að drepast. Við ætluðum að fara norður um helgina, löng helgi og svona, en það verður víst lítið úr því. Vonandi tekst honum ekki að smita okkur píurnar, svona fyrst maður er alveg að fara til Skotlands og svona. Má ekki vera lasin í Skotlandi. 

Við fjölskyldan fórum í Smáralindina um daginn og pöntuðum ný gler í gleraugun hjá mér. Það er fáránlegt hvað það er dýrt að vera svona sjónlaus. Bara ný gler í gömlu gleraugun mín kosta 28 þúsund í Fríhöfninni. Algert vesen. Ég ætla nú samt að fá mér sólgleraugu líka með styrkleika. Er alveg komin með nóg af þessu veseni. Og mikið skal ég skella mér í þessa blessuðu laseraðgerð um leið og ég get. Það verður nú samt örugglega ekki fyrr en við komum heim frá Ameríku. Sjónin þarf að vera búin að standa í stað í svona 2 ár áður en maður skellir sér í þetta og mín er ennþá að versna.

Annars stefnir í stórframkvæmdir hérna á Grettisgötunni. Búið að fá tilboð í málningu á ganginn og í nýtt dyrabjöllukerfi. Veitir ekki af. Gangurinn er ógeðslegur og verður örugglega æðislega fínn eftir að það verður búið að spartla og mála, pússa handriðið og lakka aftur og svona. Svo er allt í einu dyrasíminn hættur að virka. Heyrist bara ekkert í manni þegar maður svarar. Og svo er hurðin líka í þvílíku rugli. Maður þarf að sparka henni upp. Mega vesen. 

Heitustu fréttirnar í dag eru samt að það er komin ný lína frá E-label. Er ýkt spennt yfir því. Búin að kíkja á þetta og þetta lookar voooða flott. Alveg spurning að skella sér á eitthvað fínerí þarna. Annars er mér farið að langa voða mikið í fullt af fötum. Alveg komin með óskalista þótt það sé afskaplega langt í bæði jól og afmæli. Langar t.d. ofsa mikið í kjól frá Forynju. Hún Sara María í Nakta apanum er snillingur og kjólarnir hennar eru geðveikt flottir. Svo langar mér líka í peysu frá Dead annað hvort með mynd af Megasi eða Björk. Einhver flík frá Aftur systrum er líka ofarlega á listanum og svo núna stöffið frá E-label. Allt kostar þetta nú samt hálfan handlegg eða svo þannig að ætli ég verði ekki að gera mér peysu, kjól og bol úr H&M að góðu í bili.
Laufey Kristín Skúladóttir
Almennt | Engin athugasemd

Fréttabréf ungfrú M

22. apríl 2008 klukkan 17:32
Litla skvísan dafnar ofsalega vel. Fór um daginn í fimm mánaða skoðun og er orðin 66cm og 7,6 kg. Sem þýðir 14cm og rúm 4kg á fimm mánuðum. Geri aðrir betur. Enda finnst mér eins og ég sé endalaust að ganga frá fötum sem eru orðin of lítil. Að sjálfsögðu þarf ég líka að fara að kaupa meira á hana og verður það gert í heimsborginni Edinborg þegar familyan fer þangað eftir rúma viku.

Það bólar ekkert á tönnum hjá ungfrúnni þótt pirringurinn í gómnum sé orðin töluverður. Það fer allt upp í munninn og hún slefar alveg heilan helling. Reyndar fékk mamma hennar ekki tennur fyrr en seint og síðar meir þannig að það kæmi ekkert á óvart þótt skvísan væri eins. Sköllótt og tannlaus fram undir eins árs aldur. Hva... það er bara töff. 

Hún er farin að spjalla og spjalla endalaust. Hlæja og skríkja og er í endalausu brasi alltaf. Alltaf eitthvað að vesenast og frekar erfitt að vera kyrr. Hún er alveg ótrúlega geðgóð og vælir voða sjaldan. Alger sósíal vera eins og mamma hennar og vill helst bara vera nálægt manni og vera með í stuðinu. Nennir ekkert ofsa mikið að dunda sér ein á teppinu.
Laufey Kristín Skúladóttir
Magnea | 2 athugasemdir

Frétta-uppfćrsla

17. apríl 2008 klukkan 13:42
* Ég er byrjuð á ritgerðinni. Búin að fá heimild fyrir nýju efni og er búin að fara 2x á bókhlöðuna. Búin að viða að mér slatta af efni og er að byrja að lesa. Hlakka til að byrja að takast á við þetta.

* Ég verð að vinna eitthvað í sumar á La Primavera. Fínt að geta skipt þessu niður þannig að Indriði vinni á daginn og ég á kvöldin.

* Ég keypti mér rosa flottar D Square gallabuxur í gær í 3hæðum á 2.000. Geri aðrir betur.

* Ég er alveg að fíla að vera komin með lokað blogg. Getur maður sagt allt sem mann langar.
Laufey Kristín Skúladóttir
1 athugasemd

Ding Dong they are gone!

16. apríl 2008 klukkan 19:55
Já krakkar mínir. Grannarnir á neðstu hæðinni, sem bera auðveldlega titilinn "steiktasta fólk í heimi", eru loksins flutt út. Með sinn hund, 2 ketti, ógeðs fílu og endalaust af hárum. Í tilefni af því koma hérna nokkur dæmi af því hvað þau eru steikt.

All mörg kvöld hefur annar gaurinn sitið úti í garði, reykt og hlustað á tónlist í iðnaðar-heyrnatólunum sínum. Það væri nú svo sem ekkert frábærlega steikt nema hvað hann hlustar á mesta píkupopp í heimi og syngur hástöfum með. Þannig að á góðu kvöldi þarf maður ekkert að hlusta á útvarpið heldur getur maður setið í stofunni með opið út á svalir og notið hans mjög svo fölsku tóna. Mjög steikt!

Þau eru búin að búa hérna í rúmt ár þessar elskur og höfum við oft oft hisst hérna í ganginum, heilsast og svona. Um daginn pöntuðum við okkur pítsu á Pizzacompany og löbbuðum og náðum í. Var þá ekki hinn gaurinn byrjaður að vinna þar. Það er skemmst frá því að segja að hann þekkti okkur ekki. Ég var á tímabili farin að leita að myndavélunum mér fannst þetta svo grillað og trúði því ekki að gaurinn væri svona grillaður. Mjög steikt!

Í Janúar komu svo um miðja nótt menn í heimsókn til þeirra og kröfðu þau um borgun. Borgun fyrir hvað vitum við náttúrulega ekki með vissu en við getum öll getið í eyðurnar. Í látunum sem af hlutust brotnaði kassin á klósettinu hjá þeim í spað, brotnaði eiginlega bara af. Í gær, og munum að það er komin Apríl, leit ég inn til þeirra og þá var klósettið ennþá brotið. Sem þýðir að þau hafa þurft að sturta niður með vatni í fötu í marga mánuði. Mjööööög steikt!

Við erum þess vegna afskaplega ánægð í dag og vonum heitt og innilega að næstu leigjendur sem flytja inn í húsið séu aðeins skárra fólk.
Laufey Kristín Skúladóttir
Sögur | 1 athugasemd

Testing

15. apríl 2008 klukkan 19:59
Verður þetta ekki bara voða fínt?
Laufey Kristín Skúladóttir
1 athugasemd