17. janúar 2009 klukkan 05:57
Það er margt búið að ganga á og margt sem segja þarf frá þannig að ég ætla að gera þetta í nokkurskonar punktaformi.
Ritgerðin:Eftir mikið púl, blóð, svita og tár kláraðist verkið og var sent í yfirlestur, prentun og skil. Mætti blessunin með hjálp einstaklegra góðrar píu á skrifstofuna að morgni 15. Janúar og þar með var háskólagöngunni í Háskóla Íslands vonandi lokið í bili. Stefnir þá, hvorki meira né minna, í útskrift hjá yours truly þann 28. Febrúar. Það er nú ekki alveg víst að maður geri nokkuð í tilefni dagsins, mæti kannski í athöfnina ef það liggur vel á mér en annað er ekki planað.
Heimferðin:Glöggir hafa tekið eftir niðurteljaranum hérna hægra megin. Við Magnea Ósk erum sem sagt á leiðinni á Skerið. Það er búið að kaupa miða fyrir fullt fullt af peningum með hjálp frá elsku elsku Guðnýju. Við leggjum af stað héðan frá Regnborginni þann 27. Feb og ferðumst í ca. 19 klst uns við lendum í Keflavík að morgni 28. Brjálað ferðalag með svona lítið kríli. Það eru því litlar líkur á því að að maður verði mjög ferskur í útskriftinni þann sama dag eftir örugglega mjög lítinn svefn. Við erum samt svo ótrúlega heppnar að þær Máney og Steinunn Vala ætla að vera samferða okkur. Það á eftir að muna svakalega um að hafa þær sem félagsskap á þessari löngu leið. Ég er farin að hlakka ofsa mikið til að koma heim í smá heimsókn og hitta alla. Er byrjuð að gera drög að dagskrá þannig að þeir sem vilja hafa eitthvað um hana að segja verða að senda inn tillögur. Við fljúgum svo aftur út 20. Mars og ætlum að stoppa nokkra daga í Boston. Indriði er akkúrat komin í Spring Break (vúhú) þá þannig að við ætlum að nota tækifærið og skoða okkur aðeins um þar.
Magnea Ósk:Þessi elska er svo mikill sólargeisli að orð fá því varla lýst. Hún er að verða svo mikill karakter og með hverjum deginum sem líður nær hún að hafa meiri tjáskipti við okkur. Þó hún tali ennþá ekki mikið þá nær hún sko algerlega að koma sinni meiningu á framfæri. Það hafa þó nokkur ný og gömul orð bæst í hópinn að undanförnu. Hún segir t.d. datt núna í tíma og ótíma. Þannig að þetta kemur hægt og hægt.
Sjálfstæðisbaráttan er algerlega hafin hjá henni sem mér finnst allt of snemmt. Hún vill bara borða sjálf, halda á skeiðinni sjálf, labba sjálf, klifra upp og niður stigann sjálf, sitja í fullorðinsstól og vera í tölvunni. Alger grallaraspói. Aðalmálið þessa dagana er að leika með tannburstann minn. Hún teymir mann á puttanum inn á bað og bendir á tannburstaboxið þangað til hún fær hann. Ofsalega ákveðin ung dama. Svo labbar hún um allt, alsæl og japplar á blessuðum burstanum.
Hún er líka farin að dansa ofsa mikið. Alltaf þegar hún heyrir tónlist þá dillar hún sér. Við mæðgur getum skemmt okkur konunglega hérna heima, þegar pabbi er í skólanum, að hlusta á barnatónlistina og dansa saman og syngja. Henni finnst það brjálæðislega skemmtilegt.
Hún vill líka ekki bara mata sjálfa sig heldur matar hún allt dótið líka. Dúkkur og leikfangabox alveg jafnt. Og gerir smjatthljóð þegar dótið á að vera að borða. Hún er smám saman að verða aðeins betri við dúkkurnar þótt hún taki þær ennþá upp á hárinu. Heldur á þeim, knúsar þær og kyssir í tíma og ótíma. Hún lætur okkur líka kyssa þær svolítið oft, það er mikið uppáhalds hjá henni núna að kyssa allt og alla.
Hún er líka alltaf að verða meira og meira hrifin af því að fara í bað. Verður hálf pirruð og fúl þegar við Indriði förum í sturtu og hún fær ekki að fara með. Teymir okkur oft inn á bað og bendir á það og biður um að fá að fara ofaní. Finnst alveg æðislegt að busla og sprella í baðinu. Skvettir mjög mikið og skríkir hátt.
Dagarnir framundan:Ég er smátt og smátt að venjast tilhugsuninni að hafa EKKERT á stefnuskránni annað en að hugsa um fjölskylduna mína. Er að ná að fylla dagskránna af skemmtilegum hlutum fyrir mig og Magneu að gera. Bóka playdate og námskeið og verkefni. Er að skipuleggja stundaskrá fyrir okkur til að koma að öllu sem þarf að gera, líkamsrækt og þess háttar included. Það þarf að koma sér í form eftir allt maraþon-átið um jólin. Svo erum við svo heppnar að hafa þær Máneyju, Steinunni Völu og Örnu hérna í Seattle þannig að við reynum að hitta þær reglulega og eins oft og við getum. Amerísku mömmurnar og krakkarnir þeirra eru líka komnar með pláss á dagskránni ásamt ferðum í dýragarðinn, barnasafnið og sædýrasafnið. Ég held að þessar vikur fram að brottfarardegi verði ofsalega fljótar að líða.
Indriði er byrjaður á fullu í skólanum og er að hans sögn í mjög skemmtilegum áföngum. Þeir eru byrjaðir af fullum krafti að kenna enda er þessi önn frekar stutt. Verður búin þegar við skvísurnar hittum hann í Boston 20. Mars. Það styttist óðum í stóra daginn 11. Febrúar þegar eiginmaðurinn verður hvorki meira né minna en þrjátíu ára. Við erum aðeins byrjuð að reyna að plana eitthvað í tilefni dagsins þó það verði ekkert partý í Nálinni ;o). Á sama tíma eru akkúrat 10 ár síðan við kynntumst þannig að það er margt sem við erum að halda uppá.
Á morgun ætlum við að fara í heimsókn til fjarskyldra ættingja Indriða, eldri hjóna sem búa hérna aðeins fyrir utan. Eftir það er planið að fara í bíltúr eitthvað hérna út fyrir. Það er allt of langt síðan við höfum komist út fyrir borgarmörkin hérna. Snjórinn undanfarna daga og ritgerðarstúss hefur sett þar strik í reikninginn. Þannig að á morgun verður bætt úr því og hlökkum við öll mjög mikið til, eða allavegana við tvö.
Næst á dagskránni er svo að vinna í umsókn fyrir CBS. Operation DK-2009 verður komin á fullt skrið á næstu dögum. Stelpur... hmmm.... þið vitið hverjar ykkar ég er að tala við! ;o)
Ég ætlaði og ætla ennþá að gera annál fyrir árið 2008 en er ennþá ekki búin að koma mér í það. Er rétt búin að ná andanum eftir að ritgerðin kláraðist og er ekki ennþá búin að gíra mig upp í upprifjunina. Það kemur á næstu dögum. Þannig að stay tuned!